Persónuvernd
Persónuverndarstefna Skattalausna
Í stuttu máli
Við vinnum með persónuupplýsingar til að geta sinnt bókhaldi, skattskilum og ráðgjöf fyrir viðskiptamenn okkar og til að uppfylla skyldur sem lög leggja á okkur. Við söfnum aðeins því sem þarf í hverju verkefni, notum það ekki í öðrum tilgangi og seljum það aldrei. Upplýsingar fara aðeins til annarra þegar verkið krefst þess, t.d. til Skattsins, eða til þjónustuaðila sem hýsa kerfin okkar. Þú getur alltaf fengið að vita hvað við geymum um þig og óskað eftir leiðréttingu eða eyðingu með því að senda okkur tölvupóst.
I. Hver ber ábyrgð
Skattalausnir ehf., kt. 450722-1460, Borgarbraut 61, 310 Borgarnesi, er ábyrgðaraðili þeirrar vinnslu sem lýst er í stefnu þessari. Fyrirspurnir og beiðnir vegna persónuverndar sendist á styrmir@skattalausnir.is eða í síma 437 1009.
Stefnan byggir á lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð (ESB) 2016/679 (almennu persónuverndarreglugerðinni), sem hefur lagagildi hér á landi.
II. Til hverra stefnan nær
Stefnan nær til viðskiptamanna okkar og tengiliða þeirra, einstaklinga sem við aðstoðum við skattframtal, þeirra sem hafa samband við okkur og þeirra sem heimsækja vefinn skattalausnir.is.
Þegar við færum bókhald eða laun fyrir fyrirtæki vinnum við einnig með upplýsingar um starfsmenn þess, viðskiptavini og birgja. Í þeim tilvikum er fyrirtækið sjálft ábyrgðaraðili og við vinnum upplýsingarnar eingöngu samkvæmt fyrirmælum þess, sem vinnsluaðili. Þeir sem eiga í hlut ættu fyrst að snúa sér til viðkomandi fyrirtækis.
III. Hvaða upplýsingar við vinnum
- Auðkennis- og samskiptaupplýsingar: nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og símanúmer.
- Fjárhags- og skattupplýsingar: bókhaldsgögn, launaupplýsingar, bankayfirlit, upplýsingar úr skattframtölum, álagningarseðlum og bréfum frá Skattinum, eftir því sem verkefnið krefst.
- Upplýsingar vegna áreiðanleikakönnunar: afrit skilríkja, upplýsingar um raunverulega eigendur og hvort viðkomandi teljist í áhættuhópi vegna stjórnmálalegra tengsla, sbr. lög nr. 140/2018.
- Samskipti: tölvupóstar, fundargerðir og skjöl sem okkur berast eða við útbúum.
- Upplýsingar af vefnum: það sem þú skrifar í fyrirspurnarform og tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tala, sem hýsingaraðili vefsins skráir af öryggisástæðum.
Við sækjumst ekki eftir viðkvæmum persónuupplýsingum. Þær geta þó komið fyrir í gögnum sem okkur eru afhent, t.d. aðild að stéttarfélagi í launagögnum. Slíkar upplýsingar eru eingöngu unnar að því marki sem nauðsynlegt er til að ljúka verkinu.
Kennitala er unnin þegar það á sér málefnalegan tilgang og er nauðsynlegt til að tryggja örugga persónugreiningu, sbr. 13. gr. laga nr. 90/2018, t.d. við skil til Skattsins.
IV. Hvaðan upplýsingarnar koma
Flestar upplýsingar koma frá þér eða fyrirtækinu sem þú tengist. Með þínu umboði sækjum við einnig upplýsingar til Skattsins, til fyrirtækjaskrár og úr bókhalds- og bankakerfum. Vegna áreiðanleikakönnunar getum við flett upp í opinberum skrám.
V. Tilgangur og lagagrundvöllur
| Tilgangur | Lagagrundvöllur |
|---|---|
| Veita umbeðna þjónustu: bókhald, laun, ársuppgjör, skattframtöl, erindi og ráðgjöf | Samningur við þig, eða við fyrirtæki sem þú tengist (b-liður 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar) |
| Áreiðanleikakönnun og eftirlit vegna aðgerða gegn peningaþvætti | Lagaskylda samkvæmt lögum nr. 140/2018 (c-liður) |
| Varðveisla bókhalds og reikninga Skattalausna | Lagaskylda samkvæmt lögum nr. 145/1994 um bókhald (c-liður) |
| Svara fyrirspurnum, þ.m.t. af vefnum | Ráðstafanir að beiðni þinni áður en samningur er gerður (b-liður), eða lögmætir hagsmunir af því að svara erindum (f-liður) |
| Öryggi vefsins og upplýsingakerfa | Lögmætir hagsmunir af því að verja kerfi og gögn (f-liður) |
| Vinnsla fyrir fyrirtæki sem eru ábyrgðaraðilar (t.d. launavinnsla) | Fyrirmæli ábyrgðaraðila samkvæmt vinnslusamningi (28. gr. reglugerðarinnar) |
VI. Hverjum upplýsingar eru afhentar
Við afhendum upplýsingar aðeins þegar verkið krefst þess, lög skylda okkur til þess eða þú hefur óskað eftir því:
- Opinberum aðilum, svo sem Skattinum, yfirskattanefnd og fyrirtækjaskrá, vegna skila og erinda sem við sinnum fyrir þig.
- Skrifstofu fjármálagreininga lögreglu og eftirlitsaðilum, þegar lög nr. 140/2018 krefjast þess.
- Þjónustuaðilum sem hýsa eða reka kerfin okkar (vinnsluaðilum), svo sem tölvupóst- og skjalakerfi (Microsoft 365), bókhalds- og launakerfi (DK hugbúnaður) og hýsingu vefsins (Cloudflare). Þeir vinna upplýsingarnar eingöngu samkvæmt fyrirmælum okkar og eru bundnir trúnaði.
Við seljum aldrei persónuupplýsingar og notum þær ekki í markaðssetningu.
VII. Flutningur út fyrir EES
Upplýsingar eru að meginstefnu unnar innan Evrópska efnahagssvæðisins. Sumir þjónustuaðilar okkar eru alþjóðleg fyrirtæki og geta unnið upplýsingar utan EES. Í slíkum tilvikum byggir flutningurinn á ákvörðun framkvæmdastjórnar ESB um fullnægjandi vernd eða stöðluðum samningsskilmálum, sbr. V. kafla reglugerðarinnar.
VIII. Hve lengi upplýsingar eru varðveittar
| Gögn | Varðveislutími |
|---|---|
| Bókhaldsgögn og fylgiskjöl | Sjö ár frá lokum reikningsárs (20. gr. laga nr. 145/1994) |
| Ársreikningar | 25 ár (20. gr. laga nr. 145/1994) |
| Gögn vegna áreiðanleikakönnunar | Að lágmarki fimm ár frá lokum viðskiptasambands (28. gr. laga nr. 140/2018) |
| Samningar, verkgögn og samskipti við viðskiptamenn | Á meðan viðskipti standa yfir og í fjögur ár eftir að þeim lýkur, í samræmi við almennan fyrningarfrest krafna |
| Fyrirspurnir sem ekki leiða til viðskipta | Eytt innan tólf mánaða |
Að varðveislutíma loknum er upplýsingum eytt eða þær gerðar ópersónugreinanlegar.
IX. Öryggi
Við gætum upplýsinganna með viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum, svo sem aðgangsstýringu, tveggja þátta auðkenningu, dulkóðuðum samskiptum og trúnaðarskyldu starfsfólks. Verði öryggisbrestur sem getur haft áhættu í för með sér tilkynnum við Persónuvernd um hann innan 72 klukkustunda og látum þá sem í hlut eiga vita þegar lög krefjast þess.
Ekki senda viðkvæm gögn í gegnum fyrirspurnarformið á vefnum. Hafðu frekar samband og við finnum örugga leið.
X. Vefurinn og vafrakökur
Vefurinn skattalausnir.is notar hvorki vefmælingar né vafrakökur í markaðs- eða greiningarskyni. Hýsingaraðili vefsins getur sett nauðsynlegar kökur til að verjast misnotkun. Slíkar kökur eru heimilar án samþykkis samkvæmt lögum nr. 70/2022 um fjarskipti.
Fyrirspurnarformið á vefnum opnar tölvupóst í þínu eigin póstforriti. Upplýsingarnar berast okkur því sem tölvupóstur og eru ekki geymdar á vefnum.
XI. Réttindi þín
Þú átt rétt á:
- að fá að vita hvort við vinnum upplýsingar um þig og fá afrit af þeim,
- að fá rangar upplýsingar leiðréttar,
- að fá upplýsingum eytt, nema okkur sé skylt að varðveita þær, t.d. samkvæmt bókhaldslögum,
- að vinnsla verði takmörkuð eða að andmæla vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum,
- að fá upplýsingar sem þú hefur látið okkur í té afhentar á tölvutæku formi.
Hvernig: Sendu tölvupóst á styrmir@skattalausnir.is með fyrirsögninni „Persónuvernd“. Við gætum þurft að staðfesta hver þú ert áður en við afhendum upplýsingar. Við svörum innan eins mánaðar.
XII. Kvörtun
Ef þú telur að við förum ekki rétt með persónuupplýsingar biðjum við þig um að hafa fyrst samband við okkur svo við getum leyst málið. Þú getur einnig ávallt beint kvörtun til Persónuverndar, personuvernd.is, postur@personuvernd.is.
XIII. Breytingar
Við endurskoðum stefnuna þegar breytingar verða á starfsemi okkar eða lögum. Gildandi útgáfa er ávallt birt á skattalausnir.is/personuvernd, með dagsetningu efst.